Nú er kominn tími til að taka til í myndavélunum og gemsunum sínum svo að hægt sé að gera minninguna um jólagjöfina ódauðlega. Senda allar myndir og video klipp á Krissann svo að þetta fari ekki allt í jólaköttinn. ÞETTA VERÐUR ÓDAUÐLEGT sem og þetta video hér :)
Strákarnir eru hópur Strákarnir sem eru eða voru búsettir í Aarhus í Danmörku. Hópurinn sameinaðist með tilkomu matarklúbbs þar sem matreidd var gæða brúnsósa og henni síðan dreift yfir ilmandi steik og vel framreiddar bakaðar kartöflur. Félagið stendur fyrir spilakvöldum og drykkjarferðum af ýmsu tagi en þó höllumst við allir að frekar blautum kvöldum á öldurhúsum borgarinnar. Einnig stöndum við fyrir kvöldskemmtunum og söngæfingum í bakgörðum.